Til leigu á Spáni

Við fjölskyldan keyptum þetta hús á Spáni eftir að hafa skoðað okkur vel um á Costa Blanca svæðinu.

Húsið er í litla bæ - Gran Alacant. 
Í henni eru rúm fyrir 6 fullorðna+barn. 

Þetta er nýtt snyrtilegt hverfi með allri þeirri þjónustu sem maður vill hafa.  Það er örstutt á flugvöllinn eða um 8. mín keyrsla.
Ekki þarf að ekki þarf að hafa bílaleigubíl fekar en menn vilja þar sem allt er í stuttu göngufæri -eða hægt að taka strætó eða taxa.
 
Öll helsta þjónusta er innan hverfisins.  Svo sem matvöruverslanir, bankar, verslanir, veitingastaðir, kaffihús, barir, bakarí og margt, margt fleira. 
 
Öll þessi þjónusta er í um 5 minútna göngufjarlægð frá húsinu í nýrri verslunarmiðstöð sem þjónar Gran Alacant og nágrannabæjum.

Á Gran Alicant  er apótek og heilsugæsla þar sem maður getur labbað inn og fengið tíma hjá lækni ef á þarf að halda (gegn gjaldi). 

í Gran Alacant (spa, Gym), líkamsrækt og snyrting þar sem hægt er að láta dekra við sig og halda sér í formi.

Gran Alicant er hluti af "White Coast" svæðinu á Costa Blanca.  En það er þekkt fyrir gæsilegar náttúrulegar strendur. ( Blue Flag Beaches)

Carabassi ströndin er í um 5 min keyrslu eða um        2 -3km fjarlægð.  Þar teygir hún sig í báðar áttir eins langt og augað eygir með gulum sandi -þar er alltaf pláss fyrir sólbaðsdýrkendur.  

Aðgangur að henni er mjög góður og á ströndinni er hægt að leigja sólbekki og sólhlífar eða bara taka sínar eigin. Einnig er hægt að leigja sér hjólabáta, brimbretti og fleira.

Innan Gran Alacant gengur rúta eða götulest um svæðið.  Hún gengur meðal annars niður á ströndina og er frábær fyrir þá sem ekki vilja leigja bíl eða hafa ekki bílpróf.

Strandborgin Alicante er í 15 min akstri. Þar er fullt af veitingastöðum og verslunum. M.a. stór H&M búð.  Frábær höfn og kastali -þanngað verður að fara. Rétt fyrir utan Alicante er San-Vincent Outlet park (Nike önnur merki )

 Benidorm er í 45-50 mín akstri. Þanngað gengur rúta frá Gran Alacant. Þar má finn:

  • Terra Mitica sem er virkilega flottur skemmtigarður.
  • Terra natura flottur dýragarður og vatnsbrautir opnar yfir hásumarið.
  • Aqualandia vatnagarðurinn, erfitt að ná krökkunum þaðan 
  • Mundomar sjávardýragarðurinn, höfrunga- og sæljónasýning sem menn verða að sjá.

Sjávarþorpið Santa Pola er 5 min frá Gran Alacant.  Þar er líflegur markaður tvisvar í viku sem hægt er að gera góð kaup á. Pola Park er minni skemmtigarður sem er virkilega fínn fyrir krakkana. http://www.polapark.com 

Hægt að fara út í eyjurnar þar með bátum og snorkla eða kafa fyrir þá sem hafa þá kunnáttu.

Fyrir golfarann er nóg úrval. Í 15-30 min akstursfjarlægð frá Gran Alacant eru 14 frábærir golfvellir: 

Campo de Golf El Plantio er í 15 km fjarlægð.  Hann býður upp á 9 og 18 holur.  Þar er hægt að leigja allt golfdót og fara í kennslu.

Golf og Country Club La Marguesa, Championship course, 35 km frá Gran Alacant.  Hann er nálægt San Juan ströndinni norður frá Gran Alacant.

Vatnasport.  Fullt af möguleikum

Endilega skoðið Google kortið hér fyrir neðan og skoðið staðsetningu villunar á kortinu.

Sem sagt nóg að gera og engum á að þurfa að leiðast.  Þetta er þó einungis brot af því sem svæðið hefur upp á að bjóða.

 Hér er linkur með meiri upplýsingum um Gran Alacant á Ensku.

 Gran Alacant er 8. mín frá flugvellinum.

Verslunar og þjónustukjarninn í stuttu göngufæri

 Yfir 50 barir og veitingstaðir eru í Gran Alacant

Frábært aðgengi að ströndinni

Carabassi ströndin -alveg frábær EU Blue Flag beach

Sandkastalar á ströndinni

 Nokkrir möguleikar á Spa og Gym á Gran Alacant